Landsbankadeildin: 13. umferð: ÍA 2-5 FH, umfjöllun


FH gerði góða ferð upp á Akranes í gærkvöldi þar sem að heimamenn í ÍA voru lagðir af velli mjög sannfærandi 2-5. Blíðskaparveður var á skaganum og virtist það hafa góð áhrif á okkar menn sem og stuðningsmenn sem áttu frábæran dag og sýndu margar af sínum bestu hliðum. Með sigrinum komst FH á toppinn á nýjan leik, um stundarsakir að minnsta kosti.

Mánudagur 28. júlí 2008.


Framkvæmdir í Kaplakrika

Eins og flestir iðkendur, foreldrar og almennir FH-ingar hafa tekið eftir er nóg um að vera á Kaplakrikasvæðinu þessa dagana. Áður en langt um líður komum við til með að eiga eitt allra glæsilegasta íþróttasvæði landsins. En á meðan framkvæmdum stendur þarf að sýna þolinmæði og fara varlega um svæðið. Smelltu hér til að fá nánari upplýsingar um framkvæmdina og aðgengi á svæðinu.

Myndasafn

Könnun

Ætlar þú að mæta á æfingar hjá Hlaupahóp FH