Æfingataflan

Æfingarnar hefjast mánudaginn 30. ágúst skv. stundatöflu, en þann daginn er Víðistaðaskóli lokaður svo að æfingar hjá 7. flokki karla og 6. flokki kvenna falla niður þann dag. Annars er allt komið í gírinn!

Handboltaskóli Loga Geirs byrjar eftir verslunarmannahelgina

Handboltaskóli Loga Geirs verður starfræktur frá 4-13 ágúst í kaplakrika.
Það verður mikið fjör og mun Logi kenna krökkunum öll undirstöðuatriðin í handbolta.

Handboltaskóli Loga Geirs byrjar í ágúst

Handboltaskóli Loga Geirs verður starfræktur frá 4-13 ágúst í kaplakrika.

Bjarni kveður FH

Bjarni Fritzson hefur sagt skilið við okkur FHinga og ákveðið að leika fyrir norðanmenn á Akureyri á næsta tímabili. Bjarni hefur verið að hugsa sinn gang frá því að tímabilið endaði í vetur og hafði úr mörgum möguleikum að velja, m.a. að halda áfram að spila fyrir FH.

Skráning í Íbúagátt 1-15. júlí

Foreldrar og forráðamenn athugið.

Til þess að fá iðkendagjöld barna niðurgreidd að hluta af Hafnarfjarðarbæ þurfa foreldrar að staðfesta að barnið æfi fótbolta, handbolta, frjálsar og/eða skylmingar hjá FH í íbúagátt Hafnarfjarðar á vef bæjarins www.hafnarfjordur.is. Íbúagáttin er opin fyrir slíkar staðfestingar frá 1. júlí til 15. júlí og er því mikilvægt að ganga frá skráningu barns hið fyrsta. Vinsamlegast látið orðið berast til allra foreldra svo að allir séu með þessa hluti á hreinu. Fimleikafélagið er stolt af sterku barna- og unglingastarfi sínu og þakkar öllum FH-ingum fyrir að taka þátt í félagsstarfinu.

Áfram FH.


Aron Pálmarsson sæmdur Gullmerki FH

Fyrir leik FH og KR á mánudaginn var, þar sem FH-ingar báru 3-2 sigur úr býtum, var Aron Pálmarsson sæmdur Gullmerki FH fyrir afrek sín í vetur. Meira...

Guðmundur stýrir kvennaliði FH áfram

Þorgeir Arnar Jónsson, formaður FH, staðfesti í samtali við Sport.is um að Guðmundur Karlsson verði áfram sem þjálfari liðsins. Óvissa hefur verið um þjálfaramál hjá kvennaliði FH, en hann staðfesti þetta í samtali við Sport.is í hádeginu.

Aron þýskur meistari

Aron Pálmarsson varð í gær þýskur meistari í handbolta með Kiel, sem Alfreð Gíslason þjálfar. Hreint út sagt ótrúlegt afrek á fyrsta ári Arons í atvinnumennsku.

Aron Evrópumeistari

Okkar eigin Aron Pálmarsson varð Evrópumeistari meistaraliða í gær með liði sínu Kiel sem Alfreð Gíslason þjálfar.

Ólafur til AG Köbenhavn

Handknattleiksdeild FH og AG Köbenhavn hafa komist að samkomulagi um sölu á Ólafi Guðmundssyni leikmanni meistaraflokks FH í handknattleik frá 1. júní 2010. Ólafur mun hins vegar spila með FH liðinu á næsta tímabili sem lánsmaður frá AG.

Framkvæmdir í Kaplakrika

Eins og flestir iðkendur, foreldrar og almennir FH-ingar hafa tekið eftir er nóg um að vera á Kaplakrikasvæðinu þessa dagana. Áður en langt um líður komum við til með að eiga eitt allra glæsilegasta íþróttasvæði landsins. En á meðan framkvæmdum stendur þarf að sýna þolinmæði og fara varlega um svæðið. Smelltu hér til að fá nánari upplýsingar um framkvæmdina og aðgengi á svæðinu.

Myndasafn

Könnun

Ætlar þú að mæta á æfingar hjá Hlaupahóp FH