2.9.2010

Úrslitaleikir á Laugardag

Á Laugardag leikur A lið 5. flokks karla FH í undaúrslitum á Íslandsmóti.  Leikirnir fara fram í Kapakrika (á frjálsíþróttavellinum).  Fyrst leika strákarnir kl.11 við Fylki og vonandi svo til úrslita kl. 16:00 á sama velli.  Það er því flott tækifæri að kíkja við fyrir og eftir leikinn hjá Stelpunum gegn Breiðablik í Pepsídeildinni.  Áfram FH.
2.9.2010

Tveir leikmenn FH í U19

FH á tvo leikmenn í U19 ára landsliði Íslands í knattspyrnu sem heldur til Búlgaríu til að taka þátt í forkeppni EM.
2.9.2010

Þýðingarmikill leikur á laugardaginn

ALLIR Á VÖLLINN!!! Næstkomandi laugardag kl. 14:00 fer fram leikur FH og Breiðabliks í 16. umferð Pepsi-deildar kvenna.
23.8.2010

Góður sigur á Fylki

FH vann í kvöld glæsilegan 4-2 sigur á Fylki eftir að hafa lent 0-2 undir í leiknum. Mörk FH skoruðu Freyr Bjarnason,Gunnar Már og Atil Viðar með 2 mörk.
12.8.2010

Úrslitaleikur VISA bikarsins FH - KR

STUÐNINGSMENN SAMEINIST KL. 15 í KAPLAKRIKA
MIÐASALA HAFIN Á WWW.MIDI.IS
FH leikur í úrslitum VISA bikarsins gegn KR á Laugardalsvelli næsta laugardag, 14. ágúst og hefst leikurinn klukkan 18.00.
Fyrir leikinn verður mikið um dýrðir í Kaplakrika. Öllum stuðningsmönnum FH gefst kostur á að gera sér glaðan dag og hita upp fyrir stórleikinn. Fjölskyldufólk getur komið saman á Fjölskylduhátíð sem haldin verður á Kaplakrikasvæðinu en einnig gefst stuðningsmönnum færi á því að koma saman inni í íþróttahúsinu í Kaplakrika þar sem verður dagskrá fyrir fullorðna fólkið, ef svo má að orði komast.
Fjölskylduhátíðin er stútfull af skemmtilegum atriðum frá klukkan 15.00 og þar til rúturnar ferja fólkið á völlinn kl. 16.45.

Kl. 15.00 Stjörnulið Loga Geirssonar tekur á móti þjálfarateymi yngri flokka FH í knattspyrnu
Kl. 15.15 Knattþrautir Krissa Coervers hefjast og verða í gangi fram að brottför
Kl. 15.30 Gamalkunnir FH-ingar fíra upp í grillinu. Sérstakt bikartilboð verður á pylsum, svala og FH-bolum
Kl. 15.45 Sverrir Garðarsson afhendir hvatningarskjöl til ungra leikmanna FH sem eru undirrituð af leikmönnum meistaraflokks FH
Kl. 16.00 Friðrik Dór tekur nokkur vel valin lög
Kl. 16.15 Strákarnir í Pollapönk taka lög á borð við Vælubílinn og Ómar Ragnarsson
Kl. 16.30 Pollapönk umbreytist í Hafnarfjarðarmafíuna og tekur FH lögin sem allir þekkja
Kl. 16.45 Fríar rútuferðir á völlinn (og til baka eftir leik).

Athugið að ef illa viðrar að þá verður dagskráin færð inn í Risa og því gilda engar afsakanir!

Andlitsmálun verður í boði frá klukkan 15.00 og þar til rúturnar fara og þá kíkir Sproti í heimsókn með hoppkastalann sinn. FH varningur verður til sölu á svæðinu og verða sérstakir FH-bikar-bolir seldir á toppprís og mælum við með því að fólk fjárfesti í einum slíkum svo að stúkan verði alhvít.

Það er ekki á hverjum degi sem við höfum kost á að upplifa svona stóran FH-dag. Við skulum því mæta með góða skapið í Krikann á laugardaginn kl. 15 og taka alla vini, vinkonur, frænkur, frændur, mömmur, pabba, afa og ömmur með okkur.

ÁFRAM FH
29.7.2010

Hópferð á ÍBV - FH

Næstkomandi fimmtudag leikur FH sannkallaðan stórleik á Hásteinsvelli i Vestmannaeyjum. Það eru 20 sæti laus í leiguvél sem fer frá Reykjavíkurflugvelli klukkan 15.40 og svo aftur heim um 22.30.
27.7.2010

UNDANÚRSLIT Í BIKAR: FH vs. Víkingur Ó

Leikurinn hefst 19.15
Dýri Guðmundsson og félagar grilla hamborgara frá 18.30

Kæru FH-ingar

Eftir frábæra mætingu og stemmningu á Haukaleiknum síðasta sunnudag er vert að ganga á lagið og óska eftir öðrum eins stuðningi í undanúrslitaleiknum á móti Víkingi frá Ólafsvík á morgun, miðvikudag.

Það er ekki á hverjum degi sem FH-ingar spila í undanúrslitum bikarkeppninnar og mjög langt er síðan slíkur leikur var leikinn á Kaplakrikavelli.

Klukkan 18.30 kyndum við í grillinu og gömlu og góðu FH-ingarnir Dýri Guðmundsson og félagar verða á grillinu. Um að gera að heilsa upp á gamlar hetjur og fá sér einn börger í leiðinni.

Láttu því sjá þig í hvítu á morgun í Krikanum klukkan 19.15, taktu alla vini þína með þér, keyptu þér borgara á grillinu og styddu FH liðið til sigurs.
25.7.2010

Skilaboð frá Matta

Skilaboð frá Matta fyrir leik ársins í Pepsi-deild karla í knattspyrnu í kvöld, þegar FH tekur á móti grönnum sínum í Haukum á Kaplakrikavelli.


22.7.2010

Fyllum Krikann - FH vs. Haukar

Leikur ársins í Pepsi-deild karla í knattspyrnu fer fram á sunnudaginn næsta, þegar FH tekur á móti grönnum sínum í Haukum á Kaplakrikavelli. Mikið verður um dýrðir á Kaplakrikasvæðinu en dagskráin hefst kl. 18:30 en þá verður grill á vægu verði og andlitsmálning fyrir alla, happdrætti þar sem m.a. má vinna bensín áfyllingu frá Atlantsolíu. Þá ætlar Friðrik Dór að taka lagið og Hafnarfjarðarmafían að koma öllum í rétta gírinn með FH-slögurunum. Leikurinn sjálfur hefst svo kl. 20:00. Við hvetjum alla til þess að mæta enda enginn alvöru Hafnfirðingur sem lætur þennan leik framhjá sér fara! Mætum í hvítu og styðjum FH til sigurs!
30.6.2010

Skráning í Íbúagátt 1-15. júlí

Foreldrar og forráðamenn athugið.

Til þess að fá iðkendagjöld barna niðurgreidd að hluta af Hafnarfjarðarbæ þurfa foreldrar að staðfesta að barnið æfi fótbolta, handbolta, frjálsar og/eða skylmingar hjá FH í íbúagátt Hafnarfjarðar á vef bæjarins www.hafnarfjordur.is. Íbúagáttin er opin fyrir slíkar staðfestingar frá 1. júlí til 15. júlí og er því mikilvægt að ganga frá skráningu barns hið fyrsta. Vinsamlegast látið orðið berast til allra foreldra svo að allir séu með þessa hluti á hreinu. Fimleikafélagið er stolt af sterku barna- og unglingastarfi sínu og þakkar öllum FH-ingum fyrir að taka þátt í félagsstarfinu.

Áfram FH.


Framkvæmdir í Kaplakrika

Eins og flestir iðkendur, foreldrar og almennir FH-ingar hafa tekið eftir er nóg um að vera á Kaplakrikasvæðinu þessa dagana. Áður en langt um líður komum við til með að eiga eitt allra glæsilegasta íþróttasvæði landsins. En á meðan framkvæmdum stendur þarf að sýna þolinmæði og fara varlega um svæðið. Smelltu hér til að fá nánari upplýsingar um framkvæmdina og aðgengi á svæðinu.

Myndasafn

Könnun

Ætlar þú að mæta á æfingar hjá Hlaupahóp FH