Hefndum náð! Umfjöllun + Myndir!
11.3.2010
Árni Freyr Helgason

Það var hart barist í kvöld þegar FH og Haukar mættust í Krikanum
Í kvöld fór fram þriðja og síðasta viðureign FH og Hauka í N1-deild karla þennan veturinn. Leikurinn var leikinn í Mekka handboltans á Íslandi, Kaplakrika, og mátti búast við mikilli spennu enda höfðu allar viðureignir liðanna í vetur verið æsispennandi og úrslitin höfðu oft á tíðum ráðist á lokamínútum leikjanna. Haukarnir höfðu borið sigur úr býtum í öllum þessum leikjum og því voru FH-ingar skiljanlega ákveðnir í að vinna sigur, enda montrétturinn í Firðinum að veði.
Fyrir leikinn voru gestirnir í Haukum á toppi N1-deildarinnar með 24 stig en FH-ingar sátu hins vegar í 3-4 sæti með 17 stig.
Það mátti því búast við frábærri skemmtun í leik kvöldsins, sem að varð svo raunin.
Fyrri hálfleikur
FH-ingar byrjuðu leikinn á góðan máta og virkuðu ákveðnir í öllum sínum aðgerðum. Strákarnir börðust grimmilega í vörninni og spiluðu agaðan sóknarleik. Mikill hraði var í leiknum frá byrjun og hart var barist. FH-ingar virtust hafa yfirhöndina þrátt fyrir að stundum væru liðin jöfn. Oftast var FH þó 2 mörkum yfir og litu ekki út fyrir að vera líklegir til að láta forystuna af hendi.

Aron var ósáttur með sína menn og ekki að ástæðulausu (Mynd: Sport.is)
Aroni Kristjánssyni leist greinilega ekki á blikuna og tók leikhlé á 14. mínútu í stöðunni 9-7. Mikið var predikerað og greinilegt að Aron var alls ekki sáttur með leik sinna manna. Staðan breyttist þó ekki mikið eftir leikhléið, FH-ingar héldu uppteknum hætti og voru alltaf með 1-2ja marka forystu. Staðan í hálfleik var 15-13, FH í vil. Sannarlega verðskulduð forysta hjá strákunum okkar!
Markahæstur í liði FH-inga í fyrri hálfleik var Bjarni Fritzson, hann skoraði 6 mörk. Pálmar Pétursson stóð sig vel í marki FH og varði 9 skot.

Bjarni að skora eitt af sínum 10 mörkum í kvöld (Mynd: Sport.is)
Seinni hálfleikur
FH-ingar héldu uppteknum hætti í seinni hálfleik og virkuðu bæði ákafir og sjálfsöruggir í sínum aðgerðum. Munurinn á liðunum í upphafi seinni hálfleiks var yfirleitt 2-3 mörk og breyttist eiginlega aldrei, sem að sýndi fram á gríðarlega einbeitingu hjá FH-ingum. Í fyrri leikjum liðanna í vetur hafði FH oft komist yfir en ávallt tapað því niður, en það var ekki á teningunum í kvöld. Ein helsta ástæða þess að Haukar náðu yfir höfuð að halda í við FH-ingana að einhverju leiti er sú að oft á tíðum léku FH-ingar manni færri inni á vellinum, þökk sé leikrænum tilburðum Haukamanna og óöryggi dómarapars leiksins.

Einar Andri segir sínum mönnum til af hliðarlínunni (Mynd: Sport.is)
En fljótt tóku FH-ingar öll völd á vellinum. Með hjálp stuðningsmanna sinna, sem að voru vægast sagt frábærir í kvöld, náðu FH-ingar að stinga meistarana af og unnu að lokum góðan 6 marka sigur, 31-25.
FH-ingar voru frábærir í kvöld. Varnarleikur liðsins var virkilega góður og sóknarleikurinn var með þeim betri sem að undirritaður hefur séð í deildinni í vetur. Strákarnir voru alveg 100% frá fyrstu mínútu og gáfu ekki tommu eftir. Þá stóðust þeir áhlaup Haukanna um miðjan seinni hálfleik, eitthvað sem að FH-ingar hafa ekki staðist áður í vetur. Greinilegt að strákarnir hafa unnið heimavinnuna sína vel fyrir leikinn, þeir virtust einfaldlega hafa lausnir við öllum aðgerðum Haukamanna.
Markahæstur FH-inga í kvöld var Bjarni Fritzson, sem að skoraði 10 mörk og átti frábæran leik þrátt fyrir að fá litla sem enga hjálp frá dómurum leiksins. Oft á tíðum fékk hann Bjarni okkar ansi hressilegar byltur í horninu, byltur sem að oft dugðu til vítakasta hinum megin á vellinum, en því var ekki að heilsa; aldrei fékk hann neitt fyrir sinn snúð. Það kom þó ekki að sök og átti hann eins og áður sagði frábæran leik. Næstmarkahæstur í liði FH var bronsdrengurinn Ólafur Guðmundsson, en hann skoraði 5 mörk. Tilvonandi faðirinn og Húsvíkingurinn Pálmar Pétursson átti flottan leik og varði 16 skot.

Áttundi maðurinn: Stuðningsmenn FH voru frábærir í kvöld (Mynd: Sport.is)
Áttundi maðurinn
Það ber að hrósa stuðningsmönnum FH fyrir frammistöðu þeirra í leiknum í kvöld. Voru þeir vægast sagt frábærir allan tímann og reyndust vera áttundi maðurinn fyrir lið FH í kvöld. Svo sannarlega gott fordæmi fyrir stuðningsmannahópa annarra liða í deildinni!
Þegar á heildina er litið var þetta frábær dagur fyrir FH-inga. Frábær leikur, mögnuð stemning og langþráður sigur okkar manna á erkifjendunum, og það STÓRsigur. Hafi einhver efast um liðið eftir tapleikinn gegn Fram um daginn hljóta þeir efasemdamenn að hugsa sinn gang á nýjan leik. Leiki liðið oftar eins og það lék í kvöld er það deginum ljósara að þeir koma til með að verða í einu af toppsætunum þegar mótinu lýkur. Þá er það okkar stuðningsmannanna að styðja á bak við strákana í átt að því markmiði, í blíðu og stríðu. Saman stöndum við í einu og öllu; leikmenn, þjálfarar og síðast en ekki síst stuðningsmennirnir.

FH-hjartað: Sést sjaldan betur en gegn Haukum.
Næsti leikur liðsins er gegn Akureyri fyrir Norðan þann 18. mars næstkomandi. Vart er hægt að búast við því að FH-ingar fjölmenni á þann leik en það er þó alltaf hægt að senda jákvæða strauma norður til strákanna. Næsti heimaleikur liðsins er gegn Stjörnunni þann 22. mars og hvetjum við alla til að mæta á völlinn að styðja strákana okkar – þeir eiga það svo sannarlega skilið.
Áfram FH!
Markaskorarar FH:
Bjarni Fritzson - 10, Ólafur Guðmundsson – 5, Örn Ingi Bjarkason – 4, Jón Heiðar Gunnarsson – 3, Ólafur Gústafsson – 3, Ásbjörn Friðriksson – 3, Benedikt Reynir Kristinsson – 3.
Myndir frá Jóa Long
Vinur okkar og félagi, stjörnuljósmyndarinn Jóhannes Long, var á leiknum og hefur nú sent okkur myndir frá leiknum, sem að eru hér að neðan. Við þökkum Jóa kærlega fyrir!

Það var hart barist á grillinu rétt eins og inni á vellinu, nema að
þessi slagur fór fram í mesta bróðerni. Þau Lúðvík Geirsson, Þorgerður
Katrín Gunnarsdóttir og Ingvar Viktorsson stóðu vaktina.

Pálmar Pétursson stóð í marki FH í gær og varði alls 16 skot

Það var mikil barátta inni á vellinum - Freyr Brynjarsson
stoppaður af Bjarna Fritzsyni og Sigurgeiri Árna Ægissyni.

Ásbjörn Friðriksson stýrði leik FH eins og honum einum er lagið

Jón Heiðar Gunnarsson skartaði magnaðri mottu í leiknum,
ætli hún hafi ekki skipt sköpum?

Ólafur Guðmundsson skorar hér eitt marka sinna fyrir FH-liðið
án þess að varnarmaður Hauka fái rönd við reist.

Óli var ógnandi að vanda

Þessi steinlá! Á því leikur enginn vafi.

Örn Ingi átti flottan leik fyrir FH-liðið í kvöld og ógnaði
Haukum í sífellu með hraða sínum og leikni.

Bjarni Fritzson sýndi einstakt öryggi á vítalínunni

Bjarni með línusendingu

Gísli Jón og Einar Örn reyna að halda Össa frá markinu.
(Ég ítreka: reyna)

Bjarni að sleppa inn fyrir - eitt af 10 mörkum hans í kvöld.

Jón Heiðar - Þetta kallar maður ósvikna gleði!

Góðum sigri var fagnað vel og lengi í lok leiks.
