Stjarnan mætir í Krikann

27.1.2009 Heiðar Arnarson
                              

N1 deild karla, fimmtudagurinn 29. janúar 2009, kl 19:30

Karlalið FH mun fá Stjörnuna úr Garðabæ í heimsókn á fimmtudagskvöldið nk. kl 19:30. Stjarnan hefur verið í ströggli í vetur innan vallar sem utan en hafa verið ná áttum nýlega og fengið liðsstyrk. Það er því mjög erfitt verkefni framundan fyrir FH liðið.

Gengi liðanna

Stjarnan hefur aðeins unnið tvo leiki og gert 3 jafntefli. 7 hafa endað með tapi. Þeir unnu góða sigra gegn HK og Akureyri og gerðu t.a.m. jafntefli við Val. Stjörnumenn sitja nokkuð einangraðir í næstneðsta sæti með 7 stig, 4 stigum á undan Víkingi en 5 stigum á eftir Akureyri. FH liðið hefur 14 stig hefur sigrað 6 leiki gert tvö jafntefli en tapað 4 leikjum.

Stjörnuliðið

Stjarnan hefur ekki staðið undir þeim væntingum sem gerðar voru til liðsins fyrir tímabilið en liðið státar af hörkumannsskap. Margt hefur spilað inn í eins og meiðsli og bág fjárhagsstaða en fyrir áramót sagði handknattleiksdeild upp öllum samningum við leikmenn. Flestir hafa þó haldið áfram með liðinu að undanskildum Hermanni Björnssyni sem gekk í raðir okkar FHinga og Fannari Friðgeirssyni sem fór aftur í Val. Patrekur þjálfari tók sig svo til og fékk gamla refi inn eins og Gunnar Örn Erlingsson markvörð, Björn Friðriksson og Þórólf Nielsen sem allir hafa tekið fram skóna á ný en þeir léku lengi með Stjörnunni á árum áður. Patti tók sig einnig til og kippti skónum ofan af hillunni. Síðast en ekki síst hafa þeir fengið að láni frá okkur FHingum, Guðna Má Kristinsson en hann lék sinn fyrsta leik með Stjörnunni gegn HK síðastliðinn fimmtudag. Stjarnan hefur síðan á að skipa sterka leikmenn eins og Björgvin Hólmgeirsson, Vilhjálm Halldórsson og Fannar Þorbjörnsson.

Undirbúningur

FH hafði mikilvægan og gríðarlega góðan sigur gegn Fram á fimmtudaginn var og skellti þar með toppliðinu og liðinu með besta gengið hingað til. FH liðið er því til alls líklegt og ekki spurning að liðið ætlar sér stigin tvö á fimmtudag á sínum heimavelli. Leiðin liggur aðeins upp á við.

 

Ástand

Ástandið er fínt í hópnum. Liðið endurheimtir Ásbjörn úr banni og Hjörtur nær væntanlega að spila. Það eru eymsli hér og þar en ekkert sem setur stein í veginn. Menn á sjúkralista eru Árni Stefán Guðjónsson, Heiðar Örn Arnarson og Ólafur Gústafsson en Óli hefur verið að sýna sig eitthvað á gólfi og kemur væntanlega smátt og smátt inn í liðið í vetur.

 

 

Staðan

Nr. Félag Leik U J T Mörk Nett Stig
1. Fram 12 7 2 3 342:331 11 16
2. Haukar 12 8 0 4 344:310 34 16
3. Valur 12 6 3 3 330:288 42 15
4. FH 12 6 2 4 361:357 4 14
5. HK 12 5 3 4 320:327 -7 13
6. Akureyri 12 6 0 6 313:326 -13 12
7. Stjarnan 12 2 3 7 302:323 -21 7
8. Víkingur 12 1 1 10 309:359 -50 3


Aðrir leikir

Fim. 29.jan.2009 19.30 Framhús Fram - Haukar

Fim. 29.jan.2009 19.30 Vodafone höllin Valur - Akureyri

Fim. 29.jan.2009 19.30 Víkin Víkingur - HK

Fim. 29.jan.2009 19.30 Kaplakriki FH - Stjarnan


Stuðningur

Stuðningur er mikilvægur sem endranær. FHingar fjölmenntu á völlinn þegar liðið sigraði Fram og frábær stemmning var á pöllunum allan leikinn. Mætum allir góðir FHingar og hjálpum drengjunum að fikra sig enn ofar á töflunni. Í toppbaráttunni finna FHingar sig best!

Áfram FH!!!


Framkvæmdir í Kaplakrika

Eins og flestir iðkendur, foreldrar og almennir FH-ingar hafa tekið eftir er nóg um að vera á Kaplakrikasvæðinu þessa dagana. Áður en langt um líður komum við til með að eiga eitt allra glæsilegasta íþróttasvæði landsins. En á meðan framkvæmdum stendur þarf að sýna þolinmæði og fara varlega um svæðið. Smelltu hér til að fá nánari upplýsingar um framkvæmdina og aðgengi á svæðinu.

Myndasafn

Könnun

Ætlar þú að mæta á æfingar hjá Hlaupahóp FH